fös 05. júlí 2019 10:39
Magnús Már Einarsson
Sjáðu mörk og stoðsendingar Patrick Pedersen gegn KA
Patrick fagnar marki sínu í gær.
Patrick fagnar marki sínu í gær.
Mynd: Hulda Margrét
Patrick Pedersen stimplaði sig heldur betur inn í Pepsi Max-deildina af krafti í 3-1 sigri Vals á KA í gær.

Danski framherjinn skoraði fyrsta mark leiksins og átti stoðsendingar í hinum tveimur mörkum Vals.

Patrick kom aftur til Vals frá Sheriff í vikunni og fór beint í byrjunarliðið í gær.

„Það er frábært að vera kominn heim aftur, þetta er mitt annað heimili og mér líður vel hér. Ég er ánægður að vera kominn aftur og frábært að ná þrem mikilvægum stigum. Ég hef ekki spilað í einn og hálfan mánuð, ég var þreyttur í fyrri hálfleik en seinni hálfleikur var betri hjá mér," sagði Patrick í viðtali eftir leik.

Vísir hefur nú birt myndband af mörkunum frá því í gær og þau má sjá hér að neðan.


Patrick Pedersen: Gott að vera kominn heim
Athugasemdir
banner
banner