Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 05. júlí 2019 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Umboðsmaður: Barcelona vill ekki selja Coutinho
Mynd: Getty Images
Barcelona vill ekki selja Philippe Coutinho í sumar. Þetta segir umboðsmaður hans, Kia Joorabchian.

Coutinho hefur ekki heillað mikið frá því hann gekk í raðir Barcelona frá Liverpool fyrir 142 milljónir punda fyrir 18 mánuðum síðan.

Hann var orðaður við endurkomu til Liverpool í slúðrinu á miðvikudag og þá hefur verið talað um það að Barcelona gæti mögulega notað hann sem hluta af kaupum á Neymar frá Paris Saint-Germain.

„Ég talaði við Pep Segura hjá Barcelona fyrir nokkrum dögum. Hann sagði mér að félagið vilji ekki selja Coutinho í sumar, sama hvað," sagði Joorabchian við RMC Sport og bætti við: „Við höfum ekki átt í neinu sambandi við PSG."

Talið er að Antoine Griezmann sé að ganga í raðir Barcelona frá Atletico Madrid og þá er spurning hvað gerist með Neymar. Hann er sagður ósáttur við lífið í Frakklandi og vill fara aftur til Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner