Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 05. júlí 2019 12:00
Magnús Már Einarsson
West Ham vill fá Gomez til að fylla skarð Arnautovic
Mynd: Getty Images
West Ham er að reyna að fá Maxi Gomez, framherja Celta Vigo, í sínar raðir.

Gomez er ætlað að fylla skarð Marko Arnautovic sem er á leið til Kína.

Talið er að Celta Vigo vilji 45 milljónir punda fyrir Gomez en Valencia er einnig að berjast um hann.

Í augnablikinu er Gomez sagður spenntari fyrir Valencia þar sem liðið spilar í Meistaradeildinni.

Valencia ætlar einnig að bjóða Celta Vigo að fá Santi Mina í sínar raðir sem hluta af kaupverðinu fyrir Gomez.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner