Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 05. september 2018 09:11
Magnús Már Einarsson
Michael Oliver dæmir leik Íslands gegn Sviss
Pawson og Atkinson sprotadómarar
Icelandair
Michael Oliver.
Michael Oliver.
Mynd: Getty Images
Enski dómarinn Michael Oliver verður dómari þegar Ísland mætir Sviss í fyrsta leik í Þjóðadeildinni í St. Gallen á laugardaginn.

Oliver er þekktur dómari úr ensku úrvalsdeildinni og það sama má segja um endalínudómarana, sprotadómarana, sem eru Craig Pawson og Martin Atkinson.

Stuart Burt og Simon Bennetteru aðstoðardómarar og Stephen Child er fjórði dómari.

Leikurinn á laugardaginn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma en Fótbolti.net mun koma með reglulegar fréttir og viðtöl að utan fram að leik.

Ísland mætir síðan Belgíu í öðrum leik í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli á þriðjudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner