Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   fim 05. september 2019 12:06
Elvar Geir Magnússon
Arnar Viðars: Vildum fá heimavallartilfinningu
Víkingsvöllur er heimavöllur U21 út árið
Arnar og Eiður Smári.
Arnar og Eiður Smári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska U21-landsliðið er að hefja nýja undankeppni fyrir EM með tveimur heimaleikjum; gegn Lúxemborg klukkan 17 á morgun föstudag og svo gegn Armeníu á mánudag.

Báðir leikir verða á Víkingsvelli í Fossvogi en sá völlur hefur verið gerður að heimavelli U21 landsliðsins.

„Þetta verður okkar heimavöllur, allavega út 2019. Svo verður það endurskoðað eftir þessa þrjá heimaleiki sem við eigum á árinu. Þegar ég og Eiður Smári tókum við þessu þá vildum við fá meiri heimavallartilfinningu og að strákarnir viti hvert þeir eru að koma," segir Arnar.

„Það hefur verið að ráfa um með U21 landsliðið en við vildum binda okkur við einn stað. Það var fljótt litið á gervigrasvelli enda er mjög erfitt að fá allar æfingar á grasvöllum, sama hvort það sé hjá KR, FH, ÍA eða hvar sem er."

„Þetta varð fyrir valinu og við erum rosalega ánægðir með það. Vonandi gefur þetta okkur 2-3% extra."

Hver er markmið U21 liðsins í þessum riðli?

„Okkar helsta markmið er að búa til A-landsliðsmenn en til að búa þá til þá verðum við að ná árangri. Það byrjar strax í yngri landsliðum. Það er mikilvægt skref að komast í lokakeppni eins og við sjáum með A-landsliðið í dag," segir Arnar.

„Við stefnum á að komast sem lengst og trúum því að við getum sett pressu á stóru liðin í þessum riðli. Við erum með Ítalíu og Svíþjóð í riðli og svo koma Írland og við, myndi maður halda."
Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner