fim 05. september 2019 17:15
Magnús Már Einarsson
Bale segist ekki spila af ánægju með Real Madrid
Mynd: Getty Images
Gareth Bale segist ekki vera að spila af ánægju með Real Madrid. Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, vildi selja Bale í sumar og leikmaðurinn var nálægt því að fara til Jiangsu Suning í Kína.

Bale var úti í kuldanum undir lok síðasta tímabil en hann hefur spilað í byrjun á nýju tímabili. Hann segist þó ekki vera að spila með bros á vör.

„Ég skil að ég var gerður að meira fórnarlambi en flestir (í sumar). Ég tek því þó að það hafi kannski ekki verið sanngjarnt," sagði Bale í dag.

„Þetta var erfitt undir lok síðasta tímabil, ég neita því ekki. Þetta var ekki bara erfitt fyrir mig heldur líka liðið. Ég ætla ekki að segja að ég sé að spila af ánægju núna en ég er að spila og þegar ég spila þá er ég fagmannlegur og gef allt sem ég á, hvort sem það er fyrir félagslið eða landslið."

„Ég er viss um að það á eftir að verða meiri óvissa. Ég reikna með að þetta sé eitthvað sem þið verðið að ræða við Real Madrid um og þetta er á milli mín og þeirra. Við þurfum að komast að einhverri niðurstöðu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner