Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 05. september 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Elsti sonur Cafu lést í miðjum fótboltaleik
Mynd: Getty Images
Danilo Feliciano de Moraes, elsti sonur brasilísku goðsagnarinnar Cafu, lést í gær aðeins 30 ára gamall.

Hann fékk hjartaáfall í miðjum fótboltaleik fyrir utan fjölskylduheimili Cafu í Sao Paulo.

Paulo Sergio, fyrrum liðsfélagi Cafu hjá Roma og brasilíska landsliðinu, staðfesti fregnirnar í morgun.

Danilo leið illa eftir að hafa spilað fótbolta í tíu mínútur og því var farið með hann beint upp á spítala, en hann lifði ekki af.
Athugasemdir
banner
banner
banner