Leiknir tók á móti Keflavík í fyrsta leik 20. umferðar Inkasso-deildar karla.
Leiknir var fyrir leikinn í 4. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá toppliðum Gróttu og Fjölni. Keflavík var í 5. sæti með tveimur stigum minna en Leiknir.
Níu stig voru í pottinum fyrir leiki kvöldsins og því bæði lið með raunhæfan möguleika á sæti í Pepsi Max-deildinni á komandi leiktíð en möguleikar heimamanna töluvert meiri.
Leiknismenn voru líklegri í fyrri hálfleik og varði Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflvíkinga, vel í að minnsta kosti þrígang auk þess sem Leiknismenn skölluðu í slána á marki Keflavíkur.
Sindri Kristinn varði svo aftur á 84. mínútu og þeirri 85. mínútu og virtust gestirnir ætla að halda út og hirða stigið.
Heimamenn voru ekki á sömu skoðun og í uppbótartíma gerðist þetta: „GOGOGOGOGOGOGOGOGO
GOGOGOGOGOL. Vá senur! Mark og þetta kom hratt! FLAUTUMARK! BUZZER, CRUNCH TIME, BRJÁLÆÐIÐ. Vonir lifa í Breiðholti!!" skrifaði Sævar Ólafsson í beinni textalýsingu frá leiknum. Markið skoraði Sólon Breki Leifsson eftir undirbúning frá Stefáni Árna Geirssyni.
Fljótlega eftir markið lauk leiknum og Leiknismenn því einungis stigi á eftir toppliðum Gróttu og Fjölni sem eiga leik til góða.
Athugasemdir