Það eru aðeins tveir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag og fara þeir báðir fram í Inkasso-deild karla.
Báðir leikirnir eru gífurlega spennandi og afar mikilvægir. Sá fyrri fer fram í Breiðholti þar sem Leiknir R. tekur á móti Keflavík. Liðin eru í toppbaráttu og tap í dag gæti gert út um vonir um að komast upp í efstu deild.
Leiknir er í fjórða sæti, fjórum stigum eftir Gróttu í öðru sæti. Keflavík er búið að vinna þrjá í röðo g er tveimur stigum eftir Leikni.
Þegar leiknum í Breiðholti fer að ljúka hefst fallbaráttuslagur í Hafnarfirði þar sem Haukar taka á móti Njarðvík.
Njarðvík er á botninum en Haukar eru ekki í fallsæti. Þó er aðeins eitt stig sem skilur liðin að.
Inkasso deildin - 1. deild karla
17:30 Leiknir R.-Keflavík (Leiknisvöllur)
19:15 Haukar-Njarðvík (Ásvellir)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir