Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 05. september 2019 23:15
Oddur Stefánsson
Luca: Þetta var erfitt fyrir bæði lið
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Það var fallbaráttuleikur á teppinu á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og Njarðvík mættust í hörku 4 - 0 leik.

Luca Lúkas Kostic þjálfari Hauka gat ekki verið annað en sáttur með sína leikmenn eftir þeirra framistöðu í kvöld.

„Þetta var erfitt fyrir bæði lið, bæði lið börðust við skoruðum ekki þeir, fyrir mér er þetta munur. Ég get ekki sagt að við höfum spilað sambabolta en við lögðum allt í leikinn."

Luca saðgi um daginn að hann myndi ekki þjálfa meistaraflokk Hauka eftir þessa leiktíð og var spurður hvort honum hefði snúist hugur eftir sigur kvöldsins.

„Það er alltaf dásamlegt að vinna leik, en nei ég er ekki að spá lengra en í næsta leik sem er gegn Keflavík. En ég verð að hósa leikmönnunum sem lögðu allt í þennan leik."

Haukar hafa ekki gulltryggt sér sæti í Inkasso deildinni á næstu leiktíð en eru þó komnir langt með það.

„Það eru sex stig í pottinum og í fótbolta þá veistu aldrei hvað getur gerst og við erum bara í svipaðri getu eins og liðin í kringum okkur."

Haukar mæta Keflavík í næstu umferð og geta Haukar tryggt sér sæti í deildinni á næstu leiktíð í þeim leik.
Athugasemdir
banner
banner