Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. september 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Mellberg nýr þjálfari Daníels
Olof Mellberg.
Olof Mellberg.
Mynd: Getty Images
Olof Mellberg, fyrrum varnarmaður Aston Villa og sænska landsliðsins, hefur verið ráðinn þjálfari Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni.

Daníel Hafsteinsson spilar með Helsingborg en félagið keypti hann frá KA í sumar.

Mellberg tekur við starfinu af öðrum fyrrum sænskum landsliðsmanni en Henrik Larsson hætti á dögunum eftir læti hjá stuðningsmönnum félagsins.

Mellberg var 1. júlí síðastliðinn ráðinn þjálfari Fremad Amager í dönsku B-deildinni.

Hann ákvað að hætta eftir tvo mánuði í starfi þar til að hjálpa Helsingborg en liðið er í 10. sæti í sænsku úrvalsdeildinni, fimm stigum frá fallsvæðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner