Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. september 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Treyja Guðrúnar Arnardóttur á 1000 krónur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Arnardóttir er með áritaða Djurgården IF treyju á lottó uppboði til styrktar Krabbameinsfélagsins.

Guðrún var lykilmaður í liði Breiðabliks frá 2012 til 2018 og var svo fengin yfir til Djurgården í byrjun árs.

Kostar aðeins 1000kr miðinn og getur þú nælt þér í hann á vefsíðu CharityShirts.

Vinningshafi verður dreginn út mánudaginn 9 september kl 19:00. Allur ágóði rennur til Krabbameinsfélagsins.

Samtals hefur íþróttafólk, þökk sé frábæru framtaki hjá CharityShirts, safnað næstum tveimur milljónum króna til góðgerðarmála.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner