Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. október 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Campbell búinn að ræða við Southend eins og Larsson
Mynd: Getty Images
Sol Campbell er búinn að ræða við Southend United um stjórastarfið sem þar er laust.

Sky Sports fjallar um þessi tíðindi.

Campbell ræddi við Ron Martin, stjórnarformann Southend. Stjórastarfið hjá Southend hefur verið laust í tæpan mánuð, eða frá því Kevin Bond hætti þann 6. september.

Campbell er fyrrum varnarmaður enska landsliðsins. Hann er með eitt aðalþjálfarastarf á ferilskránni. Hann þjálfaði Macclesfield með fínum árangri áður en hann hætti í upphafi þessa tímabils vegna fjárhagsvandræða félagsins.

Hermann Hreiðarsson var aðstoðarmaður Campbell hjá Macclesfield.

Southend er í ensku C-deildinni, en einnig hefur verið rætt við Svíann Henrik Larsson vegna starfsins.

Talið er að það verði tilkynnt um nýjan stjóra hjá Southend í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner