Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. október 2019 13:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship: Fulham jafnaði í tvígang gegn Charlton - Jón Daði á bekknum
Mynd: Getty Images
Fulham 2 - 2 Charlton Athletic
0-1 Conor Gallagher ('41 )
1-1 Ivan Cavaleiro ('56 )
1-2 Macauley Bonne ('57 )
2-2 Aleksandar Mitrovic ('62 )

Fulham tók á móti Charlton í hádegisleik dagsins í ensku Championship deildinni.

Conor Gallagher kom gestunum í Charlton yfir þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Chris Solly skallaði boltanum á Gallagher sem skoraði með hægrifótar skoti.

Ivan Cavaleiro jafnaði leikinn fyrir Fulham þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Bobby De Cordova-Reid, sem kom inn á í upphafi seinni hálfleiks, átti sendinguna á Cavaleiro.

Tveimur mínútum seinna komust gestirnir aftur yfir þegar Darren Pratley átti fyrirgjöf á Macualey Bonne sem skallaði boltann í netið.

Fimm mínútum seinna jafnaði Aleksandar Mitrovic metinn með hægrifótar skoti af stuttu færi.

Mörkin urðu ekki fleiri. Stig skilur liðin af. Fulham er með nítján stig og Charlton átján stig.

Tíu leikir hefjast klukkan 14:00 í Championship deildinni. Hjá Millwall er Jón Daði Böðvarsson á varamannabekknum er Millwall tekur á móti Leeds.
Athugasemdir
banner
banner