Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. október 2019 23:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Gundogan var nálægt því að fara til Bayern
Ilkay Gundogan.
Ilkay Gundogan.
Mynd: Getty Images
Þjóðverjinn Ilkay Gundogan var nálægt því að fara til Bayern Munchen áður en hann fór til Manchester City sumarið 2016, Gundogan greindi frá þessu í viðtali á dögunum.

Manchester City keypti Gundogan frá Borussia Dortmund.

„Ég get staðfest það að það voru um tíma viðræður í gangi við Bayern Munchen en að lokum varð ekkert úr þeim."

„Núna er ég mjög ánægður hjá Man City, ég held að ég get ekki fundið annað félag í heiminum þessa stundina sem hentar mér jafn vel og er með jafn góðan knattspyrnustjóra," sagði Gundogan.

Manchester City tekur á móti Wolves á morgun, flautað verður til leiks klukkan 13:00.

Athugasemdir
banner
banner
banner