Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. október 2019 11:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hópur Real gegn Granada: Bale og James snúa aftur - Enginn Courtois
Gareth Bale snýr aftur í dag.
Gareth Bale snýr aftur í dag.
Mynd: Getty Images
Real Madrid tekur á móti Granada í spænsku La Liga klukkan 14:00 í dag.

Real gerði óvænt, 2-2, jafntefli gegn Club Brugge í Meistaradeildinni í vikunni þar sem Thibaut Courtois leit illa út í mörkum Brugge og fór af velli í hálfleik.

Sjá einnig: Real Madrid: Courtois fékk ekki kvíðakast

Gareth Bale og James Rodriguez koma inn í hópinn hjá Real Madrid en Marcelo, Vinicius JR og Lucas Vazquez eru fjarverandi. Þá er Courtois ekki með í hópnum.

Alphonse Areola verður að öllum líkindum í markinu og Eder Militao í vinstri bakverðinum.
Hópurinn hjá Real í dag.

Markmenn: Areola, Altube og Belman.

Varnarmenn: Carvajal, Militão, Sergio Ramos, Varane og Odriozola.

Miðjumenn: Kroos, Modric, Casemiro, Valverde, James og Isco.

Sóknarmenn: Hazard, Benzema, Bale, Jović og Rodrygo.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner