Real Madrid leikur þessa stundina við Granada í spænsku La Liga. Þegar langt er liðið á fyrri hálfleikinn leiðir lið Real með einu marki gegn engu.
Karim Benzema skoraði markið strax á annarri mínútu eftir sendingu frá Gareth Bale.
Karim Benzema skoraði markið strax á annarri mínútu eftir sendingu frá Gareth Bale.
Bale kom inn í lið Real fyrir leikinn í dag en hann lék ekki með liðinu í 2-2 jafntefli í miðri viku.
Stoðsending hans var einkar lagleg. Bale átti sprett upp hægri vænginn og átti svo laglega utanfótarsendingu inn á Benzema sem skoraði.
Stoðsendinguna má sjá hér, hér eða hér.
Sjá einnig: Hópur Real gegn Granada: Bale og James snúa aftur - Enginn Courtois
Athugasemdir