Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. október 2019 19:25
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lloris fór úr olnbogalið
Mynd: Getty Images
Hugo Lloris markvörður Tottenham og franska landsliðsins var borinn af velli í dag í 3-0 tapi gegn Brighton.

Í stöðunni 0-0 ætlaði Lloris sér að grípa boltann, það mistókst hins vegar. Hann missti boltann og það nýttu Brighton-menn sér og komu boltanum yfir línuna.

Lloris lenti mjög illa eftir þetta og var í kjölfarið borinn af velli og fluttur á sjúkrahús til nánari skoðunar.

Tottenham sendi frá sér tilkynningu í kvöld þar sem greint var frá nýjustu tíðindum af Lloris. Þar kom fram að Lloris hafi farið úr olnbogalið.

Lloris var í franska landsliðshópnum sem mætir Íslandi á Laugardalsvelli næstkomandi föstudag en mun skiljanlega ekki geta tekið þátt í leiknum.


Athugasemdir
banner
banner