Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. október 2019 21:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Solskjær: Ég set hjarta, líf og sál í þetta starf
Mynd: Getty Images
Gengi Ole Gunnar Solskjær og lærisveina hans í Manchester United hefur ekki verið gott undanfarið, þeir heimsækja Newcastle á morgun í lokaleik 8. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar.

Solskjær stefnir á fyrsta sigur Man Utd á útivelli á tímabilinu, hann telur að sigur á morgun geti haft mikið að segja fyrir framhaldið.

„Auðvitað er stemningin ekki eins góð þegar við erum ekki að vinna leiki, ég set hjarta, líf og sál í þetta starf," sagði Solskjær í samtali við Sky Sports.

„Fyrir okkur er mikilvægt að ná í sigur gegn Newcastle, ég held að það muni breyta stemningunni mikið í kringum liðið. Strákarnir geta þá farið inn í landsleikjahléið ánægðir og komið hressari til baka.

Flautað verður til leiks í viðureign Newcastle og Manchester United klukkan 15:30 á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner