Norski framherjinn Erling Braut Haaland er að eiga draumabyrjun með Manchester City en hann skoraði tvö mörk fyrir liðið gegn FCK í Meistaradeildinni í kvöld áður en honum var skipt af velli.
Haaland var kominn með 17 mörk í öllum keppnum fyrir leikinn í kvöld og hélt hann áfram góðu gengi og skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum.
Pep Guardiola, stjóri Man City, skipti Haaland af velli í hálfleik, en þessi stóri og stæðilegi framherji er nú með 28 mörk í fyrstu 22 leikjum sínum í keppninni.
Blaðamaðurinn Duncan Alexander bendir á þá skemmtilegu staðreynd að Haaland hefur skorað eitt prósent af öllum mörkum Man City í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni frá upphafi.
Norðmaðurinn er nú með 19 mörk í öllum keppnum og er bara rétt að byrja.
Haaland has now scored 1.0% of all Man City goals in PL & CL history
— Duncan Alexander (@oilysailor) October 5, 2022
Athugasemdir