KSÍ hefur samið um æfingaaðstöðu fyrir yngri landslið Íslands í fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði í Vetrarmýri í Garðabæ, sem opnaði formlega í febrúar á þessu ári.
Fyrstu KSÍ-æfingarnar í húsinu voru á dagskrá í september (Hæfileikamótun drengja) og framundan í október eru æfingar yngri landsliða.
Samningur KSÍ við sveitarfélagið Garðabæ, sem á og rekur Miðgarð, er til næstu þriggja ára. Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar undirrituðu samninginn í Miðgarði.
„Æfingar yngri landsliða síðustu þrjú árin hafa verið í Skessunni í Kaplakrika í Hafnarfirði. KSÍ þakkar FH kærlega fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf og óskar félaginu alls hins besta," segir á heimasíðu KSÍ.
Athugasemdir