Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. nóvember 2019 15:33
Elvar Geir Magnússon
Andre Gomes kominn af sjúkrahúsinu
Andre Gomes sárkvalinn á vellinum.
Andre Gomes sárkvalinn á vellinum.
Mynd: Getty Images
Andre Gomes, miðjumaður Everton, er kominn af sjúkrahúsinu eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna ökklabrots.

Gomes meiddist illa í 1-1 jafnteflinu gegn Tottenham á Goodison Park um helgina.

Hann fór undir hnífinn á sjúkrahúsi í Liverpool á mánudag og er búist við því að hann nái sér að fullu.

Í yfirlýsingu frá Everton er sagt að Gomes muni nú halda endurhæfingu áfram undir sjúkrateymi félagsins.

Ekki er búið að segja til um það hversu lengi búist sé við því að Gomes verði frá keppni en talið er að það geti orðið heilt ár.


Athugasemdir
banner
banner