Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 05. nóvember 2019 21:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Hermann og Campbell töpuðu á gamla heimavellinum
Hermann í leik með Portsmouth gegn Manchester United.
Hermann í leik með Portsmouth gegn Manchester United.
Mynd: Getty Images
Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson fóru á sinn gamla heimavöll, Fratton Park, með lærisveina sína í Southend United í kvöld.

Campbell lék með Portsmouth frá 2006 til 2009 og var Hermann hjá félaginu frá 2007 til 2012. Þeir stýra núna Southend saman og mættu þeir Portsmouth í kvöld.

Portsmouth komst yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks og var staðan 1-0 í hálfleik. Portsmouth komst svo í 2-0 snemma í seinni hálfleiknum.

Brandon Goodship minnkaði muninn fyrir Southend á 69. mínútu, en lengra komst Southend ekki.

Portsmouth skoraði úr vítaspyrnu á 80. mínútu og bætti við sínu fjórða marki á 84. mínútu. Lokatölur 4-1 fyrir Portsmouth.

Portsmouth er í 13. sæti, en Southend er í næst neðsta sæti með aðeins fimm stig. Campbell og Hermann hafa verk að vinna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner