Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 05. nóvember 2019 16:12
Elvar Geir Magnússon
Fabian vill helst fara til Real Madrid
Fabian Ruiz, leikmaður Napoli.
Fabian Ruiz, leikmaður Napoli.
Mynd: Getty Images
ESPN segir að Real Madrid hafi fundað með Fabian Ruiz, miðjumanni Napoli, í spænsku höfuðborginni í síðasta mánuð.

Þessi 23 ára leikmaður er eftirsóttur en Barcelona og Manchester City hafa bæði áhuga á honum. Samkvæmt ESPN er þó efst á óskalista Fabian að fara til Madrídar.

Njósnarar Barcelona og City hafa verið reglulegir gestir á leikjum með Fabian.

Börsungar vilja fá miðjumann en óvissa er með framtíð Ivan Rakitic, Arturo Vidal og Sergio Busquets.

Napoli fékk Fabian frá Real Betis 2018 og hefur hann hlotið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína í ítalska boltanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner