Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. nóvember 2019 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gera grín að skilaboðunum sem Lingard fékk um helgina
Mynd: Getty Images
Í kjölfar annars vegar leiks Manchester United og Bournemouth og hins vegar leiks Watford og Chelsea birtist áhugaverð tölfræði.

Tölfræðin sýndi að Ben Foster, markvörður Watford, hefur átt fleiri tilraunir á mark andstæðinga sinna á leiktíðinni en Jesse Lingard, framsækinn miðjumaður Manchester United.

Ben Foster átti skalla undir lok leiks Watford og Chelsea sem Kepa Arrizabalaga varði glæsilega. Lingard hefur lítið sem ekkert getað með United í haust og ekki skorað í lengri tíma.

'Troll Football' birti skoplegt tíst á Twitter reikningi sínum í gær sem sýndi Jesse Lingard lesa skilaboð í leik United og Bournemouth. Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, skrifaði til Lingard að Ben Foster hafi átt fleiri tilraunir en Lingard á mark andstæðinganna á leiktíðinni.

Fyrir áhugasama þá má benda á að leikur Watford fór fram á eftir leik Manchester United. Chelsea vann Watford, 1-2, og Bournemouth lagði Man Utd, 1-0.



Athugasemdir
banner
banner
banner