Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 05. nóvember 2019 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lampard: Get ekki útskýrt þennan leik
Lampard fagnar á hliðarlínunni í kvöld.
Lampard fagnar á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Getty Images
„Ég get ekki útskýrt þennan leik," sagði Frank Lampard, stjóri Chelsea, eftir 4-4 jafntefli gegn Ajax í Meistaradeildinni á þessu þriðjudagskvöldi.

Ajax komst í 4-1, en Chelsea náði að jafna í 4-4 eftir að Ajax missti tvo menn af velli með rautt spjald.

Chelsea skoraði sigurmark, en það var dæmt af vegna hendi.

„Allt það fólk sem hefur horft á þennan leik mun segja, 'þvílíkur leikur'. Ég ber virðingu fyrir Ajax, þvílíkt og annað eins."

„Ég held ég hafi aldrei verið í leik sem þessum. Sjálfsmörkin voru saga fyrri hálfleiksins. Ég sagði í hálfleik að það yrði 3-3 eða 4-4, við vorum mjög inn í leiknum."

„Heilt yfir er ég ekki ánægður. Þetta er Meistaradeildin og við gerðum svo mörg mistök. Það sem ég er ánægðastur með er andinn sem allir á vellinum sýndu," sagði Frank Lampard.
Athugasemdir
banner
banner
banner