Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. nóvember 2019 15:25
Elvar Geir Magnússon
Son fór með til Belgrad
Son var í áfalli eftir fótbrot Andre Gomes.
Son var í áfalli eftir fótbrot Andre Gomes.
Mynd: Getty Images
Son Heung-min er í leikmannahópi Tottenham sem mætir Rauðu Stjörnunni í Belgrad í Meistaradeildinni á morgun.

Við sögðum frá því í morgun að efasemdir væru uppi um hvort Suður-Kóreumaðurinn væri í andlegu ástandi til að spila leikinn.

Harry Kane ferðaðist einnig með til Belgrad en hann lék ekki í jafnteflisleiknum gegn Everton vegna veikinda.

Tottenham birti myndband á Twitter í dag þar sem leikmannahópurinn er á leið upp í flugvél.

Tottenham er í öðru sæti B-riðils Meistaradeildarinnar eftir þrjár umferðir. Bayern München er með 9 stig á toppnum, Tottenham hefur 4 stig, Rauða Stjarnan 3 stig og Olympiakos 1 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner