05.11.22 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
James bjartsýnn á að fara til Katar


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Breski miðillinn The Evening Standard greinir frá því að bataferli Reece James gangi vel og hann sé bjartsýnn á að ná HM.
Þessi 22 ára gamli bakvörður Chelsea og enska landsliðsins meiddist í byrjun október og læknar voru smeykir um að hann myndi missa af HM.
Nú er talið að batinn gangi vel og hann sé bjartsýnn á að vera valinn í enska landsliðshópinn fyrir HM þó það þýði að hann missi af fyrstu leikjum mótsins.
England mætir Íran, Bandaríkjunum og Wales í riðlakeppninni en fyrsti leikurinn gegn Íran er þann 21. nóvember.
