Sóknarmaðurinn Mauro Icardi hjá Inter hefur verið frábær á þessu tímabili en hann er orðaður við Real Madrid í slúðurblöðum.
Icardi er fyrirliði Inter og hefur raðað inn mörkum. Talað er um að hann sé með riftunarákvæði í samningi sínum upp á 110 milljónir evra.
Icardi er fyrirliði Inter og hefur raðað inn mörkum. Talað er um að hann sé með riftunarákvæði í samningi sínum upp á 110 milljónir evra.
„Ég er valinn í argentínska landsliðið og lít á það sem viðurkenningu fyrir það sem ég hef gert í treyju Inter. Allt gengur vel á þessari stundu og ég vona að það haldi áfram á þessari braut til loka tímabilsins," segir Icardi.
Hann er farinn að horfa til HM í Rússlandi þar sem Argentína verður í riðli með Íslandi.
„Ef ég held áfram að skora svona ætti ég að eiga möguleika á að fara til Rússlands. Real Madrid? Fjölskylda mín er ánægð á Ítalíu. Við erum á toppnum og ég er markahæstur. Hvað get ég beðið um meira?"
Athugasemdir