Kvennaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur stendur fyrir yngri flokka móti í febrúar, geoSilica mótið.
Leikið verður í 5.- 8. flokki kvenna og fer mótið fram í Reykjaneshöll laugardaginn 17. febrúar.
Yngri flokka mót hafa verið haldin undanfarin ár á haustin á vegum barna- og unglingaráðs. Þetta er aftur á móti þriðja árið í röð sem kvennaráð stendur fyrir kvennamóti í febrúar.
Venjulega fyllist fljótt í mótin hjá okkur og því er rétt að bregðast skjótt við með skráningar.
Skráningar félaga sendast á mótsstjóra á netfangið:
[email protected]
Mótsstjóri er Gunnar Magnús Jónsson
Nánari upplýsingar á heimasíðu Keflavíkur
Athugasemdir