Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. desember 2017 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndbönd: Zlatan endurmarkaðssetur sig
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic hefur fengið breska grínistann Dex Carrington í lið með sér til að endurmarkaðssetja sig.

Félagarnir eru búnir að gefa út nokkur myndbönd og er hægt að sjá þrjú þeirra hér fyrir neðan.

Í fyrsta myndbandinu kynnir Zlatan nýja 'umboðsmann' sinn, Dex, og segir alvarlegt efni vera á leiðinni frá þeim.

Í öðru myndbandinu reynir Dex að endurmarkaðssetja Zlatan með því að láta hann breyta sínum eigin tilvitnunum úr fortíðinni, þar sem hann skýtur meðal annars á norska framherjann John Alieu Carew.

Í þriðja myndbandinu rífast félagarnir svo um rangstöðuregluna.

Sjón er sögu ríkari og eru þessi myndbönd, sem Zlatan er búinn að birta á Twitter og Facebook, vægast sagt furðuleg.








Athugasemdir
banner
banner
banner