David Silva, miðjumaður Manchester City, er tæpur fyrir toppslag liðsins gegn Manchester United á sunnudag.
Silva meiddist þegar hann skoraði sigurmarkið gegn West Ham á 83. mínútu í leik liðanna um helgina.
Silva meiddist þegar hann skoraði sigurmarkið gegn West Ham á 83. mínútu í leik liðanna um helgina.
Silva ferðaðist ekki með Manchester City til Úkraínu í leik gegn Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni annað kvöld vegna meiðslanna
„Ég veit ekki hvort hann nær sér fyrir sunnudaginn," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City.
Silva hefur skorað tvö mörk og lagt upp átta í fimmtán leikjum á þessu tímabili en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í síðustu viku.
Athugasemdir