Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 05. desember 2017 13:15
Magnús Már Einarsson
Vandræði á miðjunni hjá Man Utd fyrir grannaslaginn
Matic er tæpur fyrir leikinn á sunnudaginn.
Matic er tæpur fyrir leikinn á sunnudaginn.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, gæti lent í vandræðum með að mynda öfluga miðju fyrir grannaslaginn gegn Manchester City á sunnudag.

Paul Pogba verður í banni í leiknum á sunnudag og þá eru Marouane Fellaini og Nemanja Matic meiddir.

Matic spilaði gegn Arsenal um helgina þrátt fyrir að vera tæpur vegna meiðsla. Serbinn er hins vegar óleikfær í dag eftir leik helgarinnar.

Matic verður ekki með gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld en hann gæti mögulega náð leiknum gegn City á sunnudag. Pogba spilar í kvöld enda gildir leikbann hans ekki í Meistaradeildinni.

Ander Herrera gæti byrjað gegn Manchester City ef Matic og Fellaini verða fjarverandi og hinn tvítugi Scott McTominay gæti einnig fengið sjaldséð tækifæri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner