Það gekk ýmislegt á í stórleik Manchester United og Arsenal í kvöld. Hann endaði með 2-2 jafntefli í leik sem einkenndist af baráttu og varnarmistökum.
Marouane Fellaini, leikmaður Manchester United, fékk ekkert spjald þegar hann reyndi að stöðva Matteo Guendouzi, ungan leikmann Arsenal, með því að rífa í hárið á honum.
Fellaini fór sjálfur í klippingu nýlega og losaði sig við sitt fræga hár.
Guendouzi lá á jörðinni eftir að Belginn reif í hárið á honum, steinhissa á því að mótherji sinn hafi ekki fengið neina refsingu.
United er án sigurs í síðustu fjórum úrvalsdeildarleikjum og situr í níunda sæti en Arsenal er í því fimmta.
Athugasemdir