Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 05. desember 2018 22:05
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Chievo úr leik í bikarnum
Mynd: Getty Images
Það gengur ekkert upp hjá Chievo þessa stundina en botnlið ítölsku A-deildarinnar var að tapa fyrir Cagliari í bikarnum.

Heimavöllurinn dugði Chievo ekki og gerði Fabio Pisacane verðskuldað sigurmark gestanna í síðari hálfleik.

Sassuolo lagði þá Catania að velli með sigurmarki frá Manuel Locatelli, sem er á láni frá AC Milan. Novara hafði svo betur gegn Pisa í C-deildarslag.

Novara heimsækir Lazio í 16-liða úrslitunum, Sassuolo á útileik gegn Napoli og Cagliari mætir Atalanta.

Novara 3 - 2 Pisa
0-1 M. Marconi ('16)
1-1 D. Peralta ('22)
2-1 D. Bove ('53)
2-2 F. Lisi ('72)
3-2 J. Manconi ('91)

Sassuolo 2 - 1 Catania
1-0 A. Matri ('14)
1-1 F. Brodic ('41)
2-1 M. Locatelli ('80)

Chievo 1 - 2 Cagliari
0-1 A. Cerri ('8)
1-1 M. Leris ('18)
1-2 F. Pisacane ('68)
Athugasemdir
banner
banner
banner