Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 05. desember 2018 11:02
Elvar Geir Magnússon
Koscielny haltraði af velli í leik með U21-liðinu
Meiðslavandræði Koscielny halda áfram.
Meiðslavandræði Koscielny halda áfram.
Mynd: Getty Images
Bakslag varð í endurkomu Laurent Koscielny þegar hann haltraði af velli eftir 80 mínútna leik í 2-1 sigri U21-liðs Arsenal gegn Portsmouth.

Þessi 33 ára franski miðvörður sleit hásin gegn Atletico Madrid í maí og hefur verið að vinna í endurkomu sinni.

Hann var að nálgast aðalliðið að nýju og átti að stíga skref í átt að því með því að spila fyrir unglingaliðið á Fratton Park í gær.

Ekki er vitað hvort fyrri meiðsli hafi tekið sig upp aftur eða um ný meiðsli hafi verið að ræða en vonandi nær Koscielny að snúa aftur fyrr en síðar.



Athugasemdir
banner
banner
banner