Manchester City tekur á móti Fulham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Pep Guardiola gerir tvær breytingar á liðinu sem rúllaði yfir Burnley um síðustu helgi. Joao Cancelo kemur inn fyrir Kyle Walker í hægri bakvörð og tekur Raheem Sterling stöðu Ferran Torres á vinstri kanti.
Riyad Mahrez, sem skoraði þrennu gegn Burnley, byrjar ásamt Kevin De Bruyne og Gabriel Jesus.
Fulham breytir engu eftir frækinn sigur á útivelli gegn Leicester í síðustu umferð.
Man City: Ederson, Cancelo, Dias, Stones, Mendy, Rodrigo, Gundogan, Mahrez, De Bruyne, Sterling, Jesus.
Varamenn: Steffen, Laporte, Bernardo, Torres, Fernandinho, Foden, Garcia.
Fulham: Areola, Aina, Andersen, Adarabioyo, Robinson, Reed, Anguissa, Reid, Loftus-Cheek, Lookman, Cavaleiro
Varamenn: Rodak, Ream, Bryan, Lemina, Cairney, Kamara, Mitrovic
Athugasemdir