Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. desember 2020 11:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Gátum ekki keppt við Arsenal um Willian
Willian spilaði 339 leiki á sjö árum hjá Chelsea.
Willian spilaði 339 leiki á sjö árum hjá Chelsea.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho segist hafa haft mikinn áhuga á því að krækja í Willian á frjálsri sölu frá Chelsea síðasta sumar.

Þrátt fyrir áhugann þá segir Mourinho að Tottenham hafi ekki verið reiðubúið til að bjóða brasilíska kantmanninum samkeppnishæf laun.

Hinn 32 ára gamli Willian endaði þess í stað hjá Arsenal þar sem hann skrifaði undir samning til 2023.

„Við áttum ekki efni á Willian, við gátum ekki keppt við samningstilboð Arsenal svo við leyfðum honum að fara þangað. Hann er ennþá einn af bestu leikmönnum úrvalsdeildarinnar auk þess að vera góður vinur minn. Við eigum í góðu sambandi, við spjöllum reglulega saman," sagði Mourinho.

Willian byrjaði gríðarlega vel og lagði þrjú mörk upp í fyrsta leik sínum með Arsenal, 3-0 sigri gegn Fulham. Síðan þá hefur hann spilað 12 leiki án þess að skora eða leggja upp.

Arsenal og Tottenham eigast við í hatrömmum fjandslag á morgun og er búist við að Willian verði með.

Arsenal hefur farið illa af stað á nýju úrvalsdeildartímabili en Tottenham er á fleygiferð og vermir toppsætið sem stendur.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 22 8 3 76 32 +44 74
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 33 11 12 10 52 50 +2 45
11 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner