Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 05. desember 2022 23:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fréttamaður við Henderson: Verður Bellingham mikilvægur fyrir Liverpool?
Mynd: Getty Images

Jordan Henderson og Jude Bellingham sátu fyrir svörum hjá sjónvarpsstöðinni TV 2 eftir sigur Englands á Senegal í gær.


Henderson talaði vel um Bellingham í viðtalinu en þeir komu að fyrsta markinu í 3-0 sigri liðsins í gær þar sem Bellingham lagði upp markið á Henderson.

„Ég hef sagt það oft, hann er einstakur og við þurfum að leyfa honum að njóta þess að spila fótbolta, hann er bara 19 ára svo það er bara að leyfa honum að njóta sín. Hann hefur verið frábær á þessu móti og hjá Dortmund lengi og hann heldur áfram á þessu móti. Vonandi heldur hann áfram að bæta sig og verður mikilvægur leikmaður fyrir England," sagði Henderson.

Og fyrir Liverpool í framtíðinni? Sagði spyrillinn.

Þá hló Henderson og þeir löbbuðu í burtu. Þá heyrist í Bellingham segja í léttu gríni; „Þú ert búinn að eyðileggja þetta fyrir þeim. Þú ert búinn að eyðileggja þetta maður."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner