Gareth Bale fór snemma heim þegar Real Madrid tapaði 4-3 gegn Real Sociedad í spænska bikarnum fyrr í kvöld.
AS segir frá þessu og birtir mynd af Bale í bifreið sinni.
Bale var ekki í hóp hjá Real í kvöld þrátt fyrir að hafa æft í vikunni. Hann hefur ekki spilað í fjórum leikjum í röð.
Bale fór af Santiago Bernabeu þegar staða var 4-1 fyrir Real Sociedad, en leikurinn endaði 4-3.
Hinn þrítugi Bale sló í gegn hjá Tottenham áður en Real Madrid keypti hann á 85 milljónir punda árið 2013. Hann varð þá dýrasti leikmaður sögunnar, en er það ekki lengur. Hann hefur á þessu tímabili komið við sögu í 12 deildarleikjum í spænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir