Elliði 2 - 8 Kórdrengir
Mörk Elliða: Nikulás Ingi Björnsson 2
Mörk Kórdrengja: Albert Brynjar Ingason 4, Jordan Damachoua, Einar Orri Einarsson, Magnús Þórir Matthíasson og Aron Skúli Brynjarsson.
Mörk Elliða: Nikulás Ingi Björnsson 2
Mörk Kórdrengja: Albert Brynjar Ingason 4, Jordan Damachoua, Einar Orri Einarsson, Magnús Þórir Matthíasson og Aron Skúli Brynjarsson.
Kórdrengir tryggðu sér í kvöld sigur í riðli 2 í C-deild Fótbolta.net mótsins. Kórdrengir völtuðu yfir Elliða.
Albert Brynjar Ingason fór fyrir sínu liði og skoraði fjögur mörk er Kórdrengir unnu 8-2 sigur á Fylkisvelli.
Kórdrengir mun leika í 2. deild næsta sumar og eru þar til alls líklegir eftir að hafa komið upp sér upp úr 3. deild síðasta sumar.
Kórdrengir hafa unnið alla leiki sína til þessa í Fótbolta.net mótinu. Þeir munu mæta sigurliðinu í riðli 1 í úrslitaleik C-deildarinnar í þessu móti.
Elliði endar á botni riðilsins og mun spila um sjöunda sætið.
Athugasemdir