Matteo Guendouzi verður 21 árs í næsta mánuði en hann hefur leikið stórt hlutverk hjá Arsenal.
Hann hefur leikið 21 leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og er í uppáhaldi hjá mörgum stuðningsmönnum liðsins, meðal annars vegna þeirrar ástríðu sem skín í gegnu á vellinum.
Hann hefur leikið 21 leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og er í uppáhaldi hjá mörgum stuðningsmönnum liðsins, meðal annars vegna þeirrar ástríðu sem skín í gegnu á vellinum.
„Stuðningsmenn eru klárlega komnir með öðruvísi væntingar til mín núna. Þegar ég kom á síðasta ári þá var ég óþekktur ungur leikmaður," segir Guendouzi.
„Ég lék vel á síðasta tímabili en það var samt horft á mig sem ungan leikmann sem var ekki þekktur. Nú hef ég sýnt hvað ég get og sýnt að ég get hjálpað liðinu mikið. Það er eðlilegt að meiri kröfur séu gerðar til mín."
„Ég tel mig hafa bætt mig mikið á þessu tímabili. Ég er að bæta mig og ætla að halda þeirri vegferð áfram. Ég mun halda áfram að verða betri."
Arsenal er í fríi og leikur ekki um helgina í ensku úrvalsdeildinni en liðið er í tíunda sæti.
Athugasemdir