Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. febrúar 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Kenny Miller leggur skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Skoski framherjinn Kenny Miller hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 40 ára að aldri.

Miller spilaði 69 landsleiki með skoska landsliðinu á ferli sínum og skoraði 18 mörk.

Miller lék bæði með Rangers og Celtic og vann fjölmarga titla með liðunum.

Á ferlinum spilaði Miller einnig til að mynda með Wolves, Derby og Cardiff.

Síðast var Miller á mála hjá Partick Thistle í skosku B-deildinni en hann rifti samningi þar í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner