Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. febrúar 2020 09:25
Magnús Már Einarsson
Kevin Nolan bætist í þjálfarateymi West Ham
Nolan fagnar marki með West Ham á sínum tíma.
Nolan fagnar marki með West Ham á sínum tíma.
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, hefur ákveðið að bæta Kevin Nolan við þjálfarateymi félagsins.

Nolan lék yfir 150 leiki með West Ham á árunum 2011 til 2015 en hann lék einnig á miðjunni hjá Bolton og Newcastle á ferli sínum.

Hann hefur reynt fyrir sér sem knattspyrnustjóri eftir ferilinn og stýrt bæði Leyton Orient og Notts County.

West Ham situr sem stendur í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og Moyes vonast til að Nolan styrki þjálfarateymi félagsins út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner