Mehmet Kucukdurmus, sóknarmaður Kestelspor í fimmtu efstu deild á Tyrklandi, sýndi mikla íþróttamennsku í leik síðastliðinn sunnudag.
Kucukdurmus var að sleppa í gegn og var einn varnarmaður á hælum hans. Er Kucukdurmus nálgaðist vítateiginn þá varð varnarmaðurinn fyrir meiðslum.
Í staðinn fyrir að fara að markinu og reyna að skora ákvað Kucukdurmus að sparka boltanum í innkast.
„Ég varð fyrir svipuðum meiðslum og var frá í 6-7 mánuði. Þegar ég sá hann stíga eins og hann gerði þá endurupplifði ég slæma daga í huganum. Samviska mín hefði ekki leyft mér að skora, og ég gerði það ekki," sagði Kucukdurmus við Goal.
Myndband af atvikinu er hér að neðan.
Striker races through on goal 🏃♂️
— Goal (@goal) February 4, 2020
Defender pulls up 🤕
Striker kicks the ball out 🙌
Fair play at its finest 👏 pic.twitter.com/8Xb47z2Kbc
Athugasemdir