fim 06. febrúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Raiola líkir De Ligt við olíuskip
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, umboðsmaður Matthijs de Ligt og fleiri ágætra leikmanna, tjáði sig um de Ligt í viðtali í gær.

Hann var með ansi skemmtilega myndlíkingu þegar hann bar saman muninn á því, fyrir de Ligt, að spila með Ajax annars vegar og Juventus hins vegar.

„Hann er eins og olíuskip. Hann var vanur hlutunum hjá Ajax, þú getur ekki búist við því að hann taki 90° beygju og sé klár strax," sagði umboðsmaðurinn um hollenska miðvörðinn.

„En þegar hann er kominn á rétta siglingaleið þá verður hann óstöðvandi," bætti Raiola við.

De Ligt er tvítugur miðvörður sem gekk í raðir Juventus síðasta sumar frá Ajax.
Athugasemdir
banner
banner
banner