Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. febrúar 2020 22:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spænski bikarinn: Barcelona líka úr leik
Williams í baráttu við Gerard Pique.
Williams í baráttu við Gerard Pique.
Mynd: Getty Images
Athletic 1 - 0 Barcelona
1-0 Inaki Williams ('90 )

Bæði Real Madrid og Barcelona eru úr leik í spænska bikarnum eftir leiki dagsins. Real Madrid Real Sociedad fyrr í kvöld og núna rétt í þessu var Barcelona að tapa gegn Athletic Bilbao í Baskalandi.

Leikurinn var í járnum alveg þangað til í uppbótartíma. Leikurinn stefndi í framlengingu, en þá skoraði Inaki Williams eina mark leiksins.

Markið má sjá hérna.

Athletic Bilbao er því komið í undanúrslit bikarsins ásamt Granada, Mirandes og Real Sociedad.

Barcelona hafði unnið bikarinn í fjögur af síðustu fimm skiptum. Í fyrra tapaði liðið í úrslitum gegn Valencia.
Athugasemdir
banner
banner