Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 06. mars 2020 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Shaw: Ég á þetta mark skuldlaust
Luke Shaw
Luke Shaw
Mynd: MEN
Luke Shaw, varnarmaður Manchester United á Englandi, er fastur á því að fyrsta markið gegn Derby í FA-bikarnum í gær sé hans.

Shaw kom United yfir eftir rúman hálftíma en hann skaut þá í Jesse Lingard og fór boltinn yfir markvörð Derby og í netið.

Hann segist eiga markið en hann átti frábæran leik í öruggum sigri liðsins.

„Fyrstu 15-20 mínúturnar voru erfiðar. Við byrjuðum ekki leikinn alveg eins og við vildum en eftir að við náðum í markið þá fór boltinn að rúlla og við náðum í sigurinn," sagði Shaw.

„Ég á þetta mark skuldlaust! Það er ekki séns að hann taki það frá mér. Hvað sem gerist í þessu þá á ég þetta mark," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner