Fotbolti.net
06.03.21 - 11:38
Aksentije Milisic

Byrjunarlið Burnley og Arsenal: Jói Berg mættur - Fimm breytingar hjá Arsenal

Jói byrjar.

Jói byrjar.

Canon

Mynd: Getty Images

Nú styttist í leikinn á Turf Moor en þar mætast Burnley og Arsenal klukkan 12:30.
Bæði lið mættu Leicester City í sínum síðasta deildarleik. Burnley gerði jafntefli við liðið á heimavelli í miðri viku en Skytturnar unnu góðan útisigur á Leicester um síðustu helgi.

Með sigri hjá gestunum í dag getur liðið blandað sér enn frekar í baráttuna um Evrópusæti á næsta tímabili á meðan heimamenn í Burnley geta forðað sér frekar frá fallsvæðinu með sigri.

Sean Dyche, stjóri Burnley, gerir eina breytingu frá jafnteflisleiknum gegn Leicester í miðri viku. Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson er mættur aftur í slaginn eftir meiðsli. Jack Cork er ekki með Burnley í dag.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gerir fimm breytingar frá sigurleiknum góða í síðustu umferð. Calum Chambers, Bukayo Saka, Pierre-Emerick Aubameyang, Martin Odegaard og Thomas Partey koma allir inn í byrjunarlið gestanna.

Burnley: Pope, Lowton, Tarkowski, Mee, Taylor, McNeil, Westwood, Brownhill, Jóhann, Wood, Vydra.
(Varamenn: Farrel, Bardsley, Long, Dunne, Stephens, Pieters, Benson, Brady, Rodriguez)

Arsenal: Bernd Leno, Tierney, Mari, Chambers, Luiz, Xhaka, Partey, Odegaard, Willian, Saka, Aubameyang.
(Varamenn: Ryan, Bellerin, Holding, Gabriel, Elneny, Ceballos, Pepe, Lacazette, Martinelli)</
Þessir tveir mættir í liðið.

Þessir tveir mættir í liðið.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.