Fotbolti.net
06.05.22 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Njarðvík fær Úlf Ágúst frá FH (Staðfest)

Njarðvík fær Úlf Ágúst frá FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Njarðvík

Njarðvík er búið að kynna nýjan leikmann sem mun leika fyrir liðið á lánssamningi frá FH sem gildir út tímabilið.

Úlfur Ágúst Björnsson, fæddur 2003, er genginn í raðir Njarðvíkinga og er afar fjölhæfur leikmaður.

Úlfur hefur tvívegis verið í leikmannahópi hjá FH í Bestu deildinni á upphafi tímabils og einu sinni fengið að spreyta sig.

Úlfur, sem lék einn U19 landsleik á síðasta ári, lék á láni hjá ÍH í 3. deildinni í fyrra og mun nú reyna fyrir sér í 2. deild.

„Við bjóðum Úlf hjartanlega velkominn til Njarðvíkur og þökkum um leið FH-ingum fyrir að lána okkur efnilegan leikmann. Áfram Njarðvík! " segir í færslu Njarðvíkur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.